Krókar
Skoða alla túpukrókaKrókar til lax- og silungsveiða eru mikilvægur þáttur fluguveiðinnar, enda skiptir verulegu máli að velja vandaða og áreiðanlega öngla. Í Veiðiflugum má finna mikið úrval króka, bæði þeim sem nefnast túpukrókar en einnig fluguhnýtingakróka og beitukróka. Verslunin býður aðeins upp á króka frá þekktum framleiðendum sem hafa fyrir löngu sannað gildi sitt, s.s. Kamasan, Mustad, Partridge, Ken Sawada og VMC. Í netversluninni Veidiflugur.is má sjá mikið af því úrvali sem á boðstólnum er, en þar er krókum skipt í tvo megin flokka.