Alta NGx Sonic Zip Vöðlupakki I

Alta NGx Sonic Zip Vöðlupakki I er frábærlega samsettur. Alta NGx Sonic Zip öndunarvöðlurnar frá Guideline eru þær bestu sem fyrirtækið hefur nokkru sinni framleitt. Í þessum pakka er val á milli þriggja vöðluskóa, þ.e. Alta NGx, Devils Canyon og Darkhorse. 

134.900kr.

Alta NGx Sonic Zip Vöðlur

Alta NGx Vibram Vöðluskór

Devils Canyon Vöðluskór

Darkhorse Vöðluskór

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Alta NGx Sonic Zip Vöðlupakki I er virkilega vandaður og hentar þeim sem verja mörgum dögum við veiðar á ári hverju. Unnt er að velja á milli þriggja gerða af vöðlsukóm, sem allar eiga það sameiginlegt að vera hannaðar til mikillar notkunnar. Alta NGx Sonic Zip eru bestu öndunarvöðlurnar Guideline. Þær eru framleiddar með ultrasonic suðutækni og eru með frábæra vatnsheldni og fyrsta flokks öndun. Þrátt fyrir að slitsterk efni séu notuð í vöðlurnar eru þær sveigjanlegar og með framúrskarandi hreyfanleika. Á vöðlunum eru tveir vatnsvarðir brjóstvasar sem rúma fluguboxin. Þar fyrir framan eru sérstakar geymslur sem hugsaðar eru undir taumaklippur, losunartöng og aðra smáhluti. Á hliðum eru renndir flísfóðraðir vasar til að verma hendur eða til að geyma aukadót.

Snið vaðlanna er rúmgott á þeim stöðum sem þess er þörf, s.s. við bak og á hnjám. Það er gert til að forðast viðnám og þannig auka endingu. Fyrir aukin þægindi eru vöðlurnar búnar seglum á axlarböndum svo unnt er að breyta þeim í mittisvöðlur á einfaldan hátt. Efri hluta vaðlanna má þrengja og víkka, allt eftir því hvort hlýtt eða kalt er í veðri. Á þeim er vatnsheldur rennilás frá TiZip, sem auðveldar notandanum að komast í og úr vöðlunum.

Devils Canyon eru ákaflega léttir vöðluskór sem falla vel að fótunum. Þeir eru með góðan ökklastuðning, þeir eru fljótir að þorna en sérstakar rásir tryggja að vatn eigi greiða leið úr skónum þegar á bakkann er komið. Hæll og tá eru sérstaklega styrkt en skórinn sjálfur er framleiddur úr mjúku gúmmíefni sem aðlagar sig að fótum notenda.

Darkhorse skórinir eru uppbyggðir á svipaðan hátt og Devils Canyon. Þeir eru þó búnir sérstöku 3PFS-kerfi, sem eykur þægindi til muna og styður um leið við ökkla og liðbönd. Hællinn er klæddur þar til gerðum stuðningspúðum sem skorða fótinn örugglega. Báðir Korkers skórnir eru með M2 Boa® vírakerfi sem gerir reimarnar óþarfar og eykur mjög þægindi við veiðar en ekki síður við að fara í þá og úr. Þá er skórnir með útskiptanlegum OmniTrax-sólum, en þeim fylgir bæði gúmmí- og filtbotn.

Alta NGx vöðluskórnir frá Guideline eru með Vibram® Idrogrip gúmmísóla sem býður upp á þægindi, stöðugleika og langa endingu. Miðsólinn ásamt stífu gerviefni sjá til þess að veita frábæran stuðning í grófu landslagi. Skórnir eru sérstaklega styrktir og þola því betur hnjask frá hvössum grjótum þegar vaðið er.