Fishpond Dakota 45″ stanga- og hjólataska

Ein allra vinsælasta taskan í Veiðiflugum. Dakota 45″ stanga- og hjólataskan frá Fishpond er stór, rúmgóð og einstaklega vel hönnuð. Í töskuna komast um 7-9 stangir, allt að 14 fetum og 8-10 hjól. Taskan er með breytilegum innri hólfum, á henni eru þrír renndir vasar að utan og þrír að innan. Frábær lausn fyrir þá sem vilja allar græjurnar á sama stað.

49.995kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Dakota 45″ stanga- og hjólataskan frá Fishpond er stór, rúmgóð og einstaklega vel hönnuð. Í töskuna komast um 7-9 stangir, allt að 14 fetum og 8-10 hjól. Taskan er með breytilegum innri hólfum, á henni eru þrír renndir vasar að utan og þrír að innan.

Frábær lausn fyrir þá sem vilja allar græjurnar á sama stað. Ein vinsælasta taskan í Veiðiflugum.
Stærð: 114 x 23 x 13 cm.

Sjálfbærni

Ný vara, gamalt efni

Fishpond er leiðandi fyrirtæki á markaði þegar kemur að sjálfbærri framleiðslu. Fyrir meira en áratug síðan hóf fyrirtækið að nota ónýt fiskinet til framleiðslu á töskum og fylgihlutum. Í dag eru nær allar vörur Fishpond framleiddar úr endurunnum efnum, s.s. netum og plastflöskum. Þannig tekst fyrirtækinu að skapa nýja hluti úr gömlum efnum, umhverfinu til heilla.