is en

Klaus Frimor til liðs við Guideline.......

10. mars 2011

Klaus er mikill fengur fyrir okkur segir leif Stavmo aðal hönnuður Guideline....

 Guideline hefur gengið frá samningi við hinn reynslumikla og vinsæla danska atvinnuveiðimann Klaus Frimor . Þessi samningur tryggir enn frekar stöðu Guideline sem eins fremsta fluguveiðimerkis í Evrópu.
 
 
Klaus kemur með gríðarlega reynslu í þetta samstarf við Guideline. En frá 5 ára aldri hefur líf hans helgast af veiði. Hann er uppalin á vestur strönd Jótlands í Danmörku þar sem ár og vötn voru allstaðar fyrir ungan áhugasaman veiðimann. Og þegar hann byrjaði síðan að vinna fyrir stærstu veiðiverslun Danmerkur í byrjun níunda áratugarins lá það beinast við að hann myndi helga líf sitt fluguveiði. Sú reynsla sem hann öðlaðist í versluninni leiddi síðan til mikils kastáhuga og einnig til áhuga á vöruþróun á stöngum og línum.
 
Undanfarin tíu ár hefur Klaus m.a starfað á sumrin á Íslandi sem leiðsögumaður og sem kastkennari fyrir fólk allstaðar að úr heiminum.Yfir vetrarmánuðina hefur Klaus dvalið í Argentínu í Tierra Del Fuego sem leiðsögumaður fyrir sjóbirtingsveiðimenn og sem “camp manager” og gestgjafi í veiðihúsum þar. Hann hefur einnig gegnt lykilhlutverki í vöruþróun hjá Loop Tackle og hefur haft með hönnun að gera á sumum af vinsælustu vörum Loop í gegnum tíðina.
 
Vinnan og ástríðan fyrir veiði hafa sent Klaus um allan heim. Fyrirlestrar, kastkennslur og sýningar á Íslandi, Kúbu, Chile og Argentínu, Bandaríkjunum og Kanada ásamt því að birtast í hinum ýmsu veiðimyndum í gegnum árin
 
Leif Stavmo Yfirhönnuður Guideline:
“ Ég er yfir mig ánægður með þennan samning. Ég hef fylgst með Klaus í bransanum og dáðst að hæfni hans. Hann er frábær persónuleiki með afslappaða framkomu. Hann hefur náð að sameina hæfni sína í bransanum en njóta jafnframt þess að veiða og ferðast til fegurstu staða heims.
 
Klaus og veiði eru eitt og þar kemur hæfni hans á hönnun á stöngum og línum best fram, enda byggð á reynslu hans sem atvinnuveiðimanns.
 
Á næstu árum mun þessi reynsla skila okkur nýjum og spennandi hlutum í hönnun á vörunum okkar og heimspekinni á bak við þær.
 
Klaus kemur með gríðarlega styrk in í hópinn sem mun enn frekar styrkja stöðu okkar og sambönd við fluguveiðimenn og verslanir í Skandinavíu, Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada”
Klaus mun hefja störf strax og kynna stangirnar og línurnar okkar á sýningunum á Norðurlöndunum í vor.
Leif Stavmo Guideline.
 
 

 
Klaus Frimor verður með kastnámskeið og ráðleggur veiðimönnum með val á stöngum og línum hjá Veiðiflugum í vor og við erum farinn að skrá þáttakendur á þau. Það er hægt að skrá sig hér.  http://veidiflugur.is/is/vorur/flokkur/kastnamskeid
 
 
Veiðimanna hópurinn er orðinn ansi þéttur hjá Guideline og óhætt að segja að hann sé að verða mannaður bestu veiðimönnum Scandinaviu með þá Leif Stavmo, Mikael Frödin, Klaus Frimor, Rune Andre Stokkebekk og Hakon Norling innanborðs.
 
Við hjá Veiðiflugum erum himinlifandi með þessa ráðningu og hlökkum til að vinna með nýjum liðsmanni Guideline.
 
Til hamingju með nýja starfið Klaus.........
 
Til baka

Fleiri fréttir

Blog dagsins kemur frá Klaus Frimor....

22 febrúar 2012

Lesa meira

Nýr Guideline Gæklingur fyrir 2012....

14 febrúar 2012

Lesa meira

FARIO vinnur enn eitt testið......

04 febrúar 2012

Lesa meira

Fish Scull í Félagsheimili Fluguhnýtara á laugardag.....

03 febrúar 2012

Lesa meira

Fluguhnýtingaefnið heldur áfram að koma....

01 febrúar 2012

Lesa meira

Hilli verður í Félagsheimilinu á laugardag....

19 janúar 2012

Lesa meira