Veiðiflugur.is - Fallegur fiskur úr Svartá.....
Í körfunni eru 0 stk
Samtals: 0 ,-krPóstlisti
Fallegur fiskur úr Svartá.....
19. júlí 2011
92 cm hrygna er bara vandræði ...
Það var með eftirvæntingu sem ég fór í Svartá þar sem ég tók Maríulaxin minn á flugu fyrir hartnær 10 árum. Þessi á sem er svo falleg og krefjandi en alltaf skemmtileg og gefandi tók á móti okkur í glaða sólskyni og fallegu veðri en fáum fiskum hafði hugnast að ganga ennþá.
Hollið á undan okkur hafði einungs náð 4 löxum, og voru þar þó öngvir aukvisar á ferð. Enda fór það svo að við félagarnir sem vorum með tvær stangir höfðum skipt aflatölum þannig eftir fyrsta daginn að allir höfðu náð lax frá 60 - 83 cm nema ég og var það þó þannig að það var ég sjálfur sem átti að vera reynsluboltinn og gjörþekkja ánna ! Hafði ég þó fengið tvo sjóbyrtinga og tvær fallegar bleikjur en það var ekki það sem ég var á höttunum eftir að þessu sinni þó að ég væri að alltaf að minna strákana á að bleikjuveiði væri fyrir lengra komna :)
Nema hvað að síðustu vaktina á ég ármótin að morgni og set saman nýju Guidline pro cast 14" tvíhenduna mína sem ég hafði valið mér og set upp stöngina eins og ég lærð af Hilla í Rússlandi með 25 p Maxim taumi og Snældu með Kamakasan krók og byrjaði systematiskt að veiða. Það er ekki að sökum að spyrja að eftir skamman tíma tók þessi fallegi 60 cm smálax í skilunum eins og væntingar stóðu til og allir búnir að fá lax og konan heima fengi eitthvað á grillið. Strax eftir að ég byrja að kasta aftur sé ég fisk lengst hinum megin í Blöndunni og þen stöngina sem mest ég mátti og nýti mér alla þá kunnáttu sem ég hafði fengið á kastnámskeiðinu hjá Veiðiflugum í vor. Það er skemmst frá því að segja að flugan flaug 30 -40 metra beint á lygnuna og 2 sek. seinna tekur hann þungt og ákveðið og ég vissi strax að hann var á, en lítið vissi ég hvað framundan væri.

Hann byrjaði sem betur fer að strauja beint upp eftir og ég ályktaði að þetta væri stærri typan og vanda mig að taka fast en jafnframt rólega á honum og næ honum yfir á minn bakka, en þá verður allt vitlaust þegar við sjáum hvorn annan !! Ég fæ auka hjartaslag og hann tryllist og snýr við með miklum bægslagangi og brunar niður eftir og nú er það sem reynir á stöng og mann, allt í keng og ég á harða hlaupum á efir honum enn tekst að stöðva hann ca 200 metrum neðar og byrja að þreyta hann Russian "style" og ca 40 mínútum síðar næ ég að stranda honum á eyrinni og þegar hann valt á hliðina og ég sá skepnuna í allri sinni dýrð þá fékk ég annað aukaslag ... hann var stærri en ég hélt og gullfalleg hryggna að auki !
Það var með þakklæti til veiðigyðjunar sem ég fann svo sterkt til þegar þessi fallegi fiskur synti aftur út í hylin sinn og ég og veiðifélagi minn hann Stefán sem var sem betur fer með myndavél, og samgladdist með mér enda enduðum við sem " top rod" í Svartá þessa vikuna :)
Allt í keng.
Atli
Til baka







