is en

HUGMYND FYRIR NES AÐDÁENDUR....

02. október 2011

Safnið  í River Em gæti verið góð hugmynd fyrir Nessvæðið....

Ég var svo heppinn að vera boðið með vinum mínum í River Em í Svíþjóð. Þar átti ég þrjá frábæra daga . Þetta er áin þar sem sagan er við hvert tré og nær langt aftur.
Em er á sem er fyrst og fremst fræg fyrir risa sjóbirtinga og tröllvaxna Baltic laxa, ég var svo heppinn að setja í tvö af þessum laxatröllum og landa báðum með hjálp Hakan vinar míns.
 
En ástæðan fyrir þessum línum er safnið sem þeir hafa sett upp í kringum söguna í ánni.
Ég fór þangað og skoðaði flugurnar sem menn hafa notað þar í gegnum árin, gluggaði i gamlar veiðibækur og skoðaði stangirnar sem menn notuðu í gegnum árin þarna á þessum sögufræga stað.
 
Þetta svæði og sagan er sláandi líkt því sem við eigum í Nesi í Aðaldal. Þarna hafa menn farið vel með ána sína og það er skylda að sleppa fiskinum sem er ekki algengt í Scandinaviu.
 
Safnið er frábær heimild um ána og söguna og ég vill kasta því til velunnara Nesveiða að setja upp safn líkt þessu. Ef mig misminnir ekki þá eru til stangir hjá SVFR sem tengjast svæðinu og það væri skemmtilegt að varðveita söguna á staðnum. Ef það er til húsnæði á Nestorfunni eða á Húsavík eða nágrenni.
 
Þetta þarf ekki að vera stórt safn, Em safnið er á 80-100 fermetrum og það sem er skemmtilegt við þetta er að veiðimenn sem elska svæðið gáfu veiðibúnað og ýmsan varning til að hægt væri að setja upp safnið sem var seldur á EBAY.
 
Ég væri meira en tilbúinn til að gefa Aðaldals fluguboxið mitt og veiðihjólið sem ég veiddi minn stærsta Aðaldals fisk á. það væri kannski hægt að fá 50-70 þúsund fyrir þetta tvennt á uppboði. Ég væri líka til í að kaupa flugur frá einhverjum öðrum veiðimanni á 30-50 þúsund og ef margir gerðu þetta þá væri hægt að gera safn um Nes.
 
 
 
 
Til að halda safninu gangandi í Em þá selja þeir bækur, kort, dvd, merki og ýmsan varnig tengdan ánni og svo mætti hugsa sér að það kostaði inn á svona safn.
 
þetta er hugmynd sem mér langar til að kasta á veiðiheiminn og ef það er einhver áhugi á þessu þá er ég til í að leggja mitt að mörkum til að þetta verði að veruleika.
 
Linkurinn á safnið í Em er http://www.gustiftelse.se/rapport07.html 
Til baka

Fleiri fréttir

Kastnámskeiðin að bókast upp....

15 maí 2012

Lesa meira

Guideline með þrjá vöðlujakka í sumar...

14 maí 2012

Lesa meira

VEIÐIMESSA 2 OG 3 JÚNÍ...

11 maí 2012

Lesa meira

EXCEED STÖNGIN SLÆR Í GEGN.....

02 maí 2012

Lesa meira

Leitin að Johnnie Walker flugunni

25 april 2012

Lesa meira

Klaus Frimor með svæði í Clearwater í Idaho...

09 april 2012

Lesa meira