Veiðiflugur.is - Félagsheimili Fluguhnýtara 14 jan kl. 13.00 - 15.00......
Í körfunni eru 0 stk
Samtals: 0 ,-krPóstlisti
Félagsheimili Fluguhnýtara 14 jan kl. 13.00 - 15.00......
11. janúar 2012
Sigurberg Guðbrandsson hnýtir leynivopnin sín.....
Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir....Félagsheimili Fluguhnýtara verður startað annað árið í röð hjá Veiðiflugum á laugardag kl 13.00 - 15.00.
Sigurberg verður fyrsti hnýtarinn í röðinni af mörgum sem koma í vetur.
það þarf ekki að kynna Sigurberg fyrir veiðimönnum, hann er frábær hnýtari og vinnur sem leiðsögumaður veiðimanna á sumrin.

Þetta uppátæki okkar féll vel í kramið síðasta vetur og dró að sér áhugamenn um hnýtingar á hverjum laugardegi. það myndaðist ákveðinn kjarni sem kom flesta laugardaga og svo völdu menn sitt áhugasvið inn á milli.
Aðaldalsmenn komu þegar verið var að hnýta Aðaldalsflugurnar og svo framvegis.

Hér má sjá flugur úr smiðju meistara Sigurberg.
Það er nauðsinlegt fyrir hnýtara að bera saman bækur sínar og þetta er frábær vetvangur til þess.
Við auglýsum svo í framhaldinu eftir hnýturum sem eru að gera skemmtilega hluti og vilja deila þeim með öðrum hér á laugardögum.
hafið samband við mig á mailinu hilmar@veidiflugur.is eða komið í búðina.
Til baka







