Veiðiflugur.is - Fluguhnýtingaefnið heldur áfram að koma....
Í körfunni eru 0 stk
Samtals: 0 ,-krPóstlisti
Fluguhnýtingaefnið heldur áfram að koma....
01. febrúar 2012
Nýtt Fish Scull og hana og hænu hnakkar í lausu....
Við hjá Veiðiflugum höldum áfram að bæta við okkur fluguhnýtingarefni.
Núna í vikunni komu ópökkuðu hana og hænu hnakkarnir sem við vorum með í fyrra og slógu algerlega í gegn.
Á síðasta ári tókum við allt of litla sendingu en nú pössuðum við okkur á að taka 50 hnakka í miklu úrvali. hnýtarar eru búnir að vera að bíða eftir þessum hnökkum.
Við þurftum að hækka þá aðeins þar sem dollarinn hefur hækkað og þeir kosta núna 3400kr. sem er samt mjög gott verð miðað við gæðin á fjöðrunum.

Fish Scull er með nýja hausa líka og við fengum þá í tveim stærðum sem hægt er að setja á túpur ásamt hefðbundnu hausunum í tveim stærðum.

Þeir hafa bætt við shanks sem hægt er að setja króka á og er sama hugmynd og Wadington sem hnýtarar kannast við. þetta er frábær viðbót til að hnýta streamera með lausum krók aftaná og Intruders steel head flugurnar eru hnýttar á þetta.

Túpukerfið frá Future fly hefur sannarlega slegið öll met og er mjög hentugt fyrir einfaldleika kerfisins. það þarf ekki að stokka sig upp fyrir mörg þúsund til að fá grunninn í kerfinu eins og þarf að gera í öðrum túpu kerfum.

Það sem er frábært við Future fly er væng efnið sem er ótrúlega flott og lifandi.
Við hjá Veiðiflugum erum á tánum og fylgjumst með öllum nýjungum í fluguhnýtingum svo Íslenskir hnýtarar fái alltaf besta efnið strax.
Nú erum við búinn að stokka ótrúlega vel upp og erum með mesta úrval af hnýtingaefni sem hefur sést síðan á tímum Litlu Flugunnar og KK heitins.
Velkominn í Félagsheimili fluguhnýtara.....kv.Hilli.
Til baka







