is en

FARIO vinnur enn eitt testið......

04. febrúar 2012

Stærsta veiðiblað Noregs kaus Fario 8,6 #3 bestu línu #3 stöngina....

Fario er ekkert að gefa eftir í gæðum heldur þvert á móti þá bæta þeir í, og nú var Fario 8,6 feta þristurinn að gera það gott.
Allstaðar sem Fario stöngin er prufuð er hún kosinn best in test hvort heldur það er í Scandinaviu eða á Englandi.
það eru allir sammála um að Fario sé besta silungastöngin á markaðnum í dag.
Hún keppir við öll helstu merkin frá Evrópu og Ameríku og alltaf er Farioinn á toppnum.
Við hjá Veiðiflugum erum ótrúlega ánægð með að geta boðið Íslenskum veiðimönnum "BESTU" silunga stöngina frá línu 2 til línu 6, ekki bara að okkar mati heldur líka þeirra sem hafa atvinnu af að fjalla um veiðibúnað.
 
Presentation línan var með í pakkanum og fékk fullt hús líka....en við höfum fundið vel fyrir því hér hjá Veiðiflugum að línurnar frá Guideline eru þær  línur sem veiðimenn taka frammyfir aðrar línur vegna gæða og hve góðar þær eri í kasti.
 
Hér má sjá umsagnir um þessa frábæru 8,6 feta #3 stöng...
 
Áður hef ég skrifað um að Trout & Salmon hefur útnefnt Fario 9 feta stangir fyrir línu 4 og 5 Best in test hjá sér þannig að stöngin fær fullt hús allstaðar.
 
Við erum alltaf með uppsettar línur og það er um að gera að koma á Langholtsveginn og prufa þessar frábæru stangir.....
 
 
Til baka

Fleiri fréttir

Kastnámskeiðin að bókast upp....

15 maí 2012

Lesa meira

Guideline með þrjá vöðlujakka í sumar...

14 maí 2012

Lesa meira

VEIÐIMESSA 2 OG 3 JÚNÍ...

11 maí 2012

Lesa meira

EXCEED STÖNGIN SLÆR Í GEGN.....

02 maí 2012

Lesa meira

Leitin að Johnnie Walker flugunni

25 april 2012

Lesa meira

Klaus Frimor með svæði í Clearwater í Idaho...

09 april 2012

Lesa meira