is en

Veiði í Rússlandi

 
Við bjóðum upp á stórkostlegar ævintýraferðir í laxveiði til Rússlands í samvinnu við Peter Power og fyrirtæki hans Atlantic Salmon Reserve á Kólaskaga. Árnar Kharlovka, Litza og Rynda eru frábærar laxveiðiár og þar veiðast árlega tugir fiska sem eru á bilinu 20 – 40 pund. Þetta eru einhverjar mestu stórlaxaár sem eftir eru í heiminum. Kharlovka og Litza eru saman í pakka en Rynda er seld sérstaklega.
 
 
Í báðum ánum er aðbúnaður veiðimanna með því allra besta sem boðið er upp á. Allir veiðimenn gista í sér herbergjum í bjálkakofum, rússnesk gufuböð eru í báðum búðunum og öryggi veiðimanna haft í fyrirrúmi. Læknir er á staðnum ef eitthvað bjátar á.
 
Flogið er með þyrlum frá Murmansk til búðanna í Kharlovka og Rynda. Í dýrustu ferðunum er veiðimönnum flogið með þyrlunni á svæðin sem þeir eiga að veiða hvern dag.
 
Árnar þrjár eru gríðarfallegar og gjöfular veiðiár. Kharlovka er stærst af þessum þremur og býður upp á glæsilegar breiður og brot þar sem stórlaxinn kann vel við sig. Litza rennur meira í gljúfrum og er með fallegri veiðiám í heimi. Þar fást jafnan stærstu laxarnir af þessu svæði. Rynda er minnst en hún er óvenju gjöful og geymir ótrúlegt magn af laxi. Meðalþyngd laxa úr þessum ám er gríðarhá TKTK.
 
Atlantic Salmon Reserve er einstakt félag því það hefur verndun laxastofnanna að leiðarljósi. Árnar eru algjörlega sjálfbærar, þar er ekki sleppt seiði og ekki hreyft við steini. Hins vegar er öllum laxi sleppt aftur, veiðiþjófnaður í ánum heyrir nú sögunni til og þess er gætt vandlega að veiðimenn gangi vel og af nærgætni um umhverfi ánna. Túndran er viðkvæmt vistkerfi og þar má sjá ýmis villt dýr, t.d. læmingja, snæhéra, jarfa, hreindýr, af og til birni úr fjarlægð, gullerni og aðrar fuglategundir. Er mikið ævintýri að heimsækja þetta einstaka svæði þótt ekki væri til annars en að skoða stórkostlegt umhverfið og náttúrulífið. Fluguveiði í þessu umhverfi er hins vegar eitt mesta ævintýr i sem veiðimönnum býðst í heiminum í dag enda getur sá stærsti á veiðiferlinum tekið hvenær sem er og þá er um að gera að vera vel viðbúinn.
 
Að mörgu leyti minnir náttúran þarna á Ísland þannig að íslenskir veiðimenn ættu að kannast við sig.
Íslendingar hafa sótt talsvert á Kólaskagann á undanförnum árum enda er þar enn að finna stórlaxinn sem hefur horfið að mestu úr íslenskum ám síðasta áratuginn eða svo. Síðustu ár hafa íslenskir veiðimenn látið til sín taka í veiðihópum í mörgum helstu ánum á Kólaskaganum. Íslendingarnir eru yfirleitt reyndari og betri veiðimenn en þeir sem jafnan sækja þessar ár heim. Þannig hafa þeir yfirleitt veitt fleiri laxa en aðrir enda beita Íslendingarnir þeirri veiðitækni sem þeir þekkja hér að heiman, eins og gárubragði, smáflugum og strippi. Flestir erlendir veiðimenn hafa ekki tileinkað sér íslensku veiðiaðferðirnar ennþá en stórlaxinn á Kóla er hins vegar afar hrifinn þegar hann sér smáflugur dregnar hratt í vatninu.
 
Í ánum hjá Atlantic Salmon Reserve geta veiðimenn verið hundrað prósent öruggir um að fyllsta öryggis sé gætt, að þeir fái veiðisvæðin sín fullkomlega hvíld og þjálfaða leiðsögumenn sem eru með þeim bestu á gjörvöllum Kólaskaga. Þá er allur aðbúnaður veiðimanna eins og best gerist, maturinn góður og vel úti látinn og allir drykkir innifaldir í pakkaverðinu. Slóðin er http://www.kharlovka.com/
 
 
Hafðu samband við okkur á veidiflugur.is  eða komdu við í verslun okkar á Langholtsvegi 111 ef þú hefur áhuga. Þú getur líka slegið á þráðinn og fengið frekari upplýsingar. Við bjóðum einnig upp á sérstakar kynningar með myndasýningu fyrir veiðifélög og veiðihópa sem hafa í hyggju að heimsækja þetta síðasta athvarf stórlaxins í heiminum.
 
Veiðikveðja.                              
Hilmar Hansson
sími 5271060
hilmar@veidiflugur.is