Veiðiflugur.is - Leitin að stórlaxinum.
Í körfunni eru 0 stk
Samtals: 0 ,-krPóstlisti
Upplýsingar
DVD diskurinn og bókin
Líkt og fram kemur í viðtalinu við Ásmund og Gunnar Helgasyni þá vörðu þeir sl. sumri að hluta í upptökur á efni fyrir nýja DVD mynd um veiði sem þeir nefna Leitin að stórlaxinum. Þeir létu það eitt hins vegar ekki duga því disknum fylgir bókin Leitin að stórlaxinum og flugurnar sem virka. Hér á eftir verður gerð nánari grein fyrir þessu efni auk þess sem birtar eru umsagnir tveggja kunnra veiðimanna.
Myndin
Við gerð myndarinnar settu tvíburabræðurnir Gunnar og Ásmundur Helgasynir sér það markmið að komast í 20 punda klúbbinn. Þeir fara víða í leit sinni að stórlaxinum, þangað sem helst er von til að markmiðið náist; í Laxá í Aðaldal, Jöklu, Breiðdalsá og Hofsá. Þeir skoða einnig hvernig Jökulsá á Dal hefur breyst úr jökulfljóti í laxveiðiá við þá miklu framkvæmd sem Kárahnjúkavirkjunin var. En fyrst og fremst er þetta skemmtileg, fróðleg og falleg mynd um leitina að íslenska stórlaxinum.
Mennirnir á bak við myndavélarnar voru Jón Þór Víglundsson og Jón Víðir Hauksson. Myndin er 80 mínútur að lengd.
Bókin
Í bókinni velja 10 valinkunnir stórlaxaveiðimenn 10 uppáhalds flugurnar sínar. Útkoman er ótrúlega fjölbreytt og fróðlegt úrval af stórlaxaflugum. Einn þessara manna er Þórður Pétursson, höfundur Laxá blá, sem sýnir hér bestu flugurnar sínar í fyrsta sinn á prenti.
Einnig er í bókinni bráðskemmtileg frásögn bræðranna Ásmundar og Gunnars af veiði sumrinu og þá aðallega hvernig veiðin hjá þeim gekk. Auk þess segja þeir líka frá því hvernig tókst til við að taka upp og framleiða myndina Leitin að stórlaxinum.
Myndirnar af flugunum í bókinni tók Jón Víðir Hauksson. Bókin er 80 bls.
Í umsögnum þeirra, sem átt hafa kost á því að kynna sér þetta nýja veiðiefni, segir m.a.:
„Þetta er stórskemmtileg tvenna, bæði bók og mynd. Skyldueign fyrir alla veiðimenn.“
– Sigurjón Ragnar, veiðileiðsögumaður og ljósmyndari.
„Hérna sýna þessir landsþekktu veiðimenn leyndarmálin. Hérna sjáum við flugurnar sem þeir nota. Ljósmyndirnar af þessum fjölbreyttu og glæsilegu flugum eru einfaldlega listaverk. Það er alveg ljóst hvaða flugur ég mun prófa á næsta ári!“
– Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur.



