Veiðiflugur.is - Veiðisögur Bubba
Í körfunni eru 0 stk
Samtals: 0 ,-krPóstlisti
Upplýsingar
Bubbi er ástríðuveiðimaður. Hér segir hann ævintýralegar sögur um glímu við silung og lax. Sögurnar hrífa lesandann alla leið fram á árbakkann og Einar Falur styður frásögnina með óviðjafnanlegum ljósmyndum.

Bubbi hefur átt ótal dýrmætar stundir við ár og vötn ásamt fjölskyldu sinni og góðum félögum. Hér kallar hann fram eftirminnilega atburði, glímu við silung í Meðalfellsvatni og átök við stórlaxa í ám víða um land. Hann segir sögur sem hrífa lesandann alla leið fram á árbakkann og Einar Falur Ingólfsson styður við frásögnina með óviðjafnanlegum ljósmyndum af fiskum og náttúrunni.
Bubbi staldrar við í Kjósinni, Rangánum, Norðlingafljóti, Grímsá, Kjarrá, Miðfjarðará, Hítará, Norðurá, Langá, Vatnsdalsá, Stóru Laxá í Hreppum, Hofsá og Laxá í Aðaldal.


