Vöðlustærðir

Það er í grunninn tvennt sem skiptir neytendur máli þegar kaupa á vöðlur: hvaða snið hentar notandanum og hve miklum fjármunum skal varið til kaupanna? Í raun má segja að verð á vöðlum sé alla jafna í hlutfalli við þá eiginleika sem vöðlurnar hafa. Þannig eru vöðlur með vatnsheldum rennilásum dýrari en þær sem enga rennilása hafa. Mikilvægasti þátturinn, óháð öðrum eiginleikum, er hversu margra laga vöðlurnar eru, því ending ræðst að miklu leiti af því. Dýrari vöðlur eru jafnan fjögurra eða fimm laga á meðan meðaldýrar vöðlur eru gjarnan þriggja laga. Ódýrustu vöðlurnar á markaðnum eru svo úr tveimur lögum, og má ráða endingu út frá því.

Stærð og snið á vöðlum er ekki síður mikilvægt, því vöðlur sem passa notandanum illa munu endast skemur en ella. Stuttar vöðlur eru þannig líklegri til að leka í klofi en þær sem sitja eðlilega, því veiðimaður þarf að geta beygt sig niður án þess að teygist á saumum. Algengustu mistökin við kaup á vöðlum er að taka þær of langar eða of stuttar, sem iðulega leiðir til þess að saumar gefa sig.

Hér fyrir neðan má finna stærðartöflu fyrir Guideline vöðlur.

A title

A – Bringa.  B – Mitti.  C – Mjaðmir.  E – Frá handarkrika að hæl.  F – Klofsídd.  G – Fótur (cm).

STÆRÐATAFLA HERRAR (CM)
Stærðatafla – vöðlur fyrir herraXSSMLXLXXLXXXL
Bringa81-8788-9495-101102-108109-115116-122122-128
Mitti74-8081-8788-9495-101102-108109-115116-122
Mjaðmir82-8889-9596-102103-109110-116117-122123-128
Frá handarkrika að hæl125127134140145147152
Klofsídd80-8282-8484-8686-8888-9090-9292-94
Fótur (cm)24,225,227,728,729,730,731,7

 

Stærðatafla – vöðlur fyrir herra

MSLSMLLLMKLKXLK
Bringa95-101102-10895-101102-108102-108109-115116-122
Mitti88-9495-10188-9495-10195-101102-108109-115
Mjaðmir96-102103-10996-102103-109103-109110-116117-122
Frá handarkrika að hæl128133140146134140145
Klofsídd79-8181-8389-9191-9384-8686-8888-90
Fótur (cm)27,728,727,728,727,728,729,7

 

STÆRÐATAFLA DÖMUR (CM)

Stærðatafla – vöðlur fyrir dömurDömu XSDömu SDömu MDömu LDömu XL
Bringa77-8283–8889-9495-100101-106
Mitti61-6667-7273-7879-8485-90
Mjaðmir86-9192-9798-103104-109110-115
Frá handarkrika að hæl133134135136137
Klofsídd74-7576-7778-7980-8182-83
Fótur (cm)2525,52626,527

 

Stærðatafla – vöðlur fyrir dömur

Dömu MQDömu LQDömu XLQ
Bringa93-9899-104105-110
Mitti77-8283-8889-94
Mjaðmir102-107108-113144-119
Frá handarkrika að hæl135136137
Klofsídd78-7980-8182-83
Fótur (cm)2626,527