Veiðiflugur
Veiðiverslunin Veiðiflugur hefur verið starfrækt á Langholtsvegi 111 í Reykjavík um margra ára skeið. Sérstaða verslunarinnar liggur í gæðunum, faglegri og góðri þjónustu við viðskiptavini ásamt fjölbreyttu vöruúrvali frá mörgum af þekktustu framleiðendum heims. Í Veiðiflugum er höfuðáhersla lögð á fluguveiði og allt sem henni tengist, hvort heldur vandaðar flugur, veiðistangir, veiðifatnað eða hvað annað sem tengist veiðum með flugu.
Í Veiðiflugum má finna mesta úrval landsins af vönduðum og vel hnýttum veiðiflugum. Verslunin býður upp mörg hundruð tegundir flugna, hvort heldur í lax- eða silungsveiði. Allar flugur sem finna má í verslun Veiðiflugna eru eru handhnýttar á Taílandi eftir ströngustu gæðakröfum. Aðeins eru notaðir sterkir og áreiðanlegir krókar frá viðurkenndum framleiðendum á borð við Mustad, VMC, Kamasan o.fl. Í netversluninni Veidiflugur.is má finna þó nokkuð úrval af silunga- og laxaflugum, sem er þó aðeins lítið brot af því úrvali sem til staðar er.