Korkers vöðluskór

Korkers vöðluskór fyrir veiðifólk sem gerir kröfur. Korkers hefur í yfir 50 ár hannað og þróað skóbúnað fyrir útivistarfólk. Fyrirtækið framleiðir nokkrar gerðir af vöðluskóm sem allir eiga það sameiginlegt að vera einstaklega hentugir, þægilegir og öruggir. Allir skór frá Korkers koma með einkaleyfisvörðum búnaði sem nefnist OmniTrax og byggir á þeirri hugmyndafræði að nota sama búnað í mismunandi aðstæðum. Með OmniTrax má skipta út sóla/botni vöðluskónna eftir því hvar er veitt og hvernig undirlagið er.

Flestir vöðluskór frá Korkers eru með endingargóðu M2 Boa® vírakerfi í stað hefðbundinna reima. Sá búnaður er til aukinna þæginda fyrir veiðimenn enda einkar þægilegt að fara í og úr skónum. Korkers skóm fylgir tvennskonar botnar en vilji menn annarskonar botna eru þeir fáanlegir í verslun Veiðiflugna. Hægt er að velja um filtbotn, neglt filt, gúmmíbotn eða neglt gúmmí Vinsælustu skórnir frá Korkers eru án efa Devil’s Canyon sem eru einstaklega léttir, með góðum öklastuðningi og aðlaga sig vel að fótum veiðimanna.