Svör við algengum spurningum
Veiðiflugur leggur ríka áherslu á að veita framúrskarandi persónulega þjónustu.
Þú getur alltaf leitað til okkar með því að senda okkur tölvupóst, skilaboð á Facebook eða hringt í síma 527-1060.
- Er ábyrgð á seldum vörum ef ég panta á netinu?
Já, það er ábyrgð á öllum vörum sem Veiðiflugur selur skv. lögum um neytendakaup nr. 48/2003.
- Hvað kostar að fá vöru senda?
Allar pantanir yfir 6.000 kr. eru sendar frítt heima að dyrum. Sendingarkostnaður að upphæð 790 kr. leggst á allar pantanir undir 6.000 kr.
- Hvenær fæ ég vörurnar?
Allar pantanir sem berast á virkum dögum eru póstlagðar samdægurs. Í flestum tilvikum berast vörur daginn eftir að þær eru pantaðar.
Sendingartími út á land er að jafnaði 1-3 dagar. Pantanir sem gerðar eru um helgar eru póstlagðar á mánudegi og ættu í flestum tilvikum að berast á þriðjudegi.
- Eru persónu- og kortaupplýsingar öruggar þegar ég versla á veidiflugur.is?
Já, þú getur treyst því. Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem trúnaðarupplýsingar og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu.
Greiðslusíða Kortaþjónustunnar tryggir að kortaupplýsingar viðskiptavina vefverslana séu meðhöndlaðar í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi og aldrei aðgengilegar þriðja aðila.
- Eru allar vörur í vefverslun tilbúnar til afhendingar?
Mikil áhersla er lögð á að birgðaupplýsingar séu réttar. Vara er tilbúin til afhendingar sé hún merkt “til á lager”.
Ef vara verður uppseld á milli þess sem pöntun er lögð inn og hún afgreidd er haft samband við viðskiptavin.
- Get ég skilað vöru sem keypt er á veidiflugur.is?
Já, það er sjálfsagt mál að skila vörum. Hægt er að skila vöru innan 30 daga frá kaupum. Þú getur valið nýja vöru eða fengið andvirði hennar endurgreitt.
- Varan sem ég fékk er gölluð – hvað á ég að gera?
Hafðu samband í síma 527-1060 eða sendu okkur póst á [email protected]
- Senda veidiflugur.is vörur út á land?
Já, Pósturinn þjónustar allar sendingar og kemur þeim til skila hvert á land sem er.
- Ég bý úti á landi - hvernig get ég skipt vöru sem passar ekki?
Ef vara, s.s. fatnaður, er ekki í réttri stærð er leikur einn að fá númeri minna/stærra. Það eina sem þú þarft að gera er að senda okkur vöruna til baka.
Það gerir þú með því að koma vörunni á næsta pósthús og líma endursendingarmiða (sem fylgir með pöntunum) á umbúðirnar.
Næst hefur þú samband við Veiðiflugur í síma 527-1060 eða sendir tölvupóst á [email protected] og tilgreinir rétta stærð.
Vara í réttri stærð verður send um leið og skiptivaran berst.
- Stöngin mín brotnaði– hvað á ég að gera?
Hafðu samband í síma 527-1060, sendu okkur tölvupóst, kíktu til okkar á Langholtsveg 111 eða sendu okkur skilaboð á Facebook.
Veiðiflugur munu í framhaldi panta nýjan stangarpart sé hann á annað borð ekki til á lager.
